Category Archives: Tölvudót

Hugleiðingar um netkosningar

on 17. desember 2009 3 Comments

Íslensk Erfðagreining og Eyjan.is kynntu í vikunni netkosningu um ríkisábyrgð á Icesave samkomulaginu sem nú liggur fyrir á Alþingi. Kosningakerfið sjálft er tvískipt. Annars vegar er ÍslendingaVal, í umsjá Íslenskrar erfðagreiningar, og svo kosningavefur Eyjunnar. Í grófum dráttum virkar þetta þannig að kjósandi skráir sig inn í ÍslendingaVal, þar sem hann er auðkenndur, og velur að taka þátt í kosningu um Icesave. Hann er þá sendur yfir á kosningavef Eyjunnar, nafnlaust, þar sem hann greiðir atkvæði sitt. Að kosningu lokinni fær þátttakandi kvittun með svarlykli sem seinna má nota til að sannreyna að atkvæðið hafi verið rétt talið.



Flokkar

Efnisorð